L. S. Hilton er höfundarnafn Lisu Hilton, sem er breskur sagnfræðingur, blaðamaður og metsöluhöfundur. Fyrir utan Maestra-trílógíuna, hefur hún skrifað fjölda sögulegra skáldsagna og ævisagna um sögulegar persónur. Megin innblástur hennar kemur frá áhrifamiklum konum í gegnum mannkynssöguna. Lisa Hilton hefur starfað sem sjónvarpskynnir, skrifað fjöldann allan af handritum fyrir sjónvarp sem og greinar í ýmis blöð og tímarit. Hún skrifar á ítölsku, frönsku og ensku, hefur m. a. ritað greinar í tímaritin Vanity Fair, Elle og Times og hefur unnið til nokkurra verðlauna fyrir greinaskrif sín. Lisa ólst upp í Norður-Englandi, en hefur búið víða, meðal annars Flórens, París, New York, Mílanó og London.