
Frá meistara sögulegra spennusagna kemur Nótt yfir vatni sem gerist í upphafi seinni heimsstyrjaldar og fjallar um flóttafólk frá Bretlandi á hættulegu ferðalagi yfir Atlantshafið.
Í sömu mund og Bretland lýsir yfir stríði á hendur Þýskalandi nasistanna fer Pan American Clipper, best útbúna flugvél heims, af stað í sitt síðasta flug til New York, athvarf þeirra sem vilja flýja átökin í Evrópu.
Farþegarnir um borð hafa hver sína ástæðu til að yfirgefa Bretland. Meðal þeirra eru enskur hefðarmaður sem flýr með fjölskyldu sína og formúu í skartgripum; þýskur vísindamaður á flótta frá nasistum; morðingi sem snýr til baka í fylgd FBI; kona sem flýr stjórnsaman eiginmann; og útsmoginn þjófur staðráðinn í að halda þýfi sínu.
Ferðin yfir Atlantshafið verður sífellt flóknari fyrir farþegana sem eru föst hvert með öðru í vélinni. Ekki síst þegar í ljós kemur ráðabrugg sem gæti orðið til þess að þau tapi öll lífinu. . .
Sjálfur segir höfundurinn að þetta sé með léttari bókum hans, þó hún sé sannarlega byggð á sönnum atburðum og haldi lesanda hugföngnum frá fyrstu síðu.
Es wurden noch keine Bewertungen abgegeben. Schreiben Sie die erste Bewertung zu "Nótt yfir hafi" und helfen Sie damit anderen bei der Kaufentscheidung.